Það þarf sterkar taugar í að vera
professionally good looking, eins og ég er! Á hverjum degi þarf
maður að berja frá sér ljósmyndara til að komast í metróinn og
hafna vonbiðlum í tugatali. Nýjasti vonbiðillinn er af verri
endanum, en það er húsvörðurinn í blokkinni okkar! Ég hef
haft það lengi að markmiði að sýna hlýtt viðmót í
hvívetna því eins og hefur verið margsannað, þá smílar
heimurinn framan í þá sem smíla framan í hann. Hins vegar
er ég komin með ógeð á því. Ég í einfeldni minni vil bara vera
viðmósblíð við náungann en hef nú séð að þetta er ekki hægt
hérna. Húsvörðurinn er á fimtugsaldri með gráa
mottu yfir efrivörinni(mér fæ meira að segja svona
oj-tilfinningu að hafa skrifað orðið efrivör í hans samhengi).
Þessi maður segist bara gleðjast þegar hann sér mig og vill að
við förum saman á deit. Hann hefur meira að segja reynt að koma
með mér á ströndina þegar ég ætlaði þangað einn góðan
veðurdag!
Í vikunni kom líka enn einn Casanovann, greip
mig(um hábjartan dag) hélt mér svo ég gat ekki lamið eða ýtt og
kyssti mig bara megablautt á munninn!!
Djöfulsins bölvað ógeð er ég komin með á þessum fjandans
uppáþrengjandi miðjarðarhafstittlingum!!
Í aðra sálma. Í gærdag, eftir að hafa gist heima hjá Hannesi,
lagði ég af stað að kaupa brauð og safa, enn í "náttfötunum"
(íþróttabuxum, bol og sandölum af H. ) Þegar ég opna útidyrahurðina
bregður mér í brún. Þar er verið að taka upp tónlistarmyndband í
götunni okkar ( þetta er íbúðin sem ég flyt í í lok maí ) með
einhverjum rosalega miklum rappgangsterum! Ég tek kveðjum þeirra og
tölti í búðina. Að því loknu, áður en ég fór aftur inn, bjóða
herramennirnir mér gin í kók(var eiginlega frekar kók í gin!!) og
við spjöllum saman. Ein konan sem er að taka upp, eða sjá um lúkkið
eða eitthvað, segir mér að þetta séu einhverjir megafrægir rapparar
á spænskumælandi svæðunum. hmmm...það skemmtilega við þetta allt
saman er að þeir völdu götuna okkar til að taka upp í því hún er
ein sóðalegasta og mest gangster-looking gatan í Barcelona. Gaman
að segja frá því.
Þessi gaf mér kók í gin í gær:
